Hvað myllumerki væri mikilvægt að nota á íslensku hérna á Mastodon? Komið með tillögur.

Gagnsemi myllumerkja er aðallega tvennskonar.

1) Að hjálpa fólki að finna það sem það hefur áhuga á.

2) Að hjálpa fólki að fela það sem það vill ekki sjá.

Við getum sumsé valið að fylgjast með ákveðnum myllumerkjum og við getum valið að sía út önnur.

Þið ættuð endilega að kíkja á hvernig síurnar virka (undir kjörstillingar).

#Íslenska #Islenska

@oligneisti er ekki best að nota #isl og svo hvað þú ert að tala um. #islfotbolti #islforeldrar #islhinsegin osfv...
Væri ekki betra að nota orðin ein og sér ef þau eru á íslensku?
@Helgaben
@oligneisti jú líklegast, ég mögulega veit ekkert 😅

@Helgaben

Ef við erum að nota orð sem eru ekki þýdd er reyndar gott að hafa isl fyrir framan. Sem dæmi væri #IslMasto.

@oligneisti Mér dettur strax í hug #fótbolti #Qatar #HM22 #HM2022 og #íþróttir út af dottlu.

@danielfreyr Væri ekki gott að velja eitt myllumerki? Ef ég hugsa verulega fram í tímann myndi ég t.d. halda að HM+ár geti valdið misskilningi þegar fleiri keppnir eru í gangi á svipuðum tíma.

(ég er með þrjá notendur opna og nota stundum vitlausan flipa).

@oligneisti Ég myndi vilja að allt sem tengist fótbolta væri með #fótbolti og #íþróttir svo væri gott að það væri eitt # fyrir HM í Qatar. Þá gæti ég mjútað öll þessi myllumerki. A.m.k. myndi ég vilja að allt íþróttatengt færi á bakvið CW merkt íþróttir.

@oligneisti mér sýnist #islenska koma sterkt inn.

En varðandi þennan server sem þú ert á, eru margir á honum og eru það þá mest Íslendingar?

@svatli

Ég er með kommentakerfid.is sem er ekki opinn fyrir skráningum (ennþá allavega). Ég er ennþá að gera einhverjar tilraunir sem ég færi varlega í ef ég væri með marga notendur (svo sem að uppfæra kerfið strax í Mastodon v4).

@matti er síðan með loðfíll.is sem er opinn.

@oligneisti @matti

Eru þetta einu íslensku serverarnir? Eru margir notendur á lodfill.is?

@svatli @matti

Mér sýnist vera rúmlega 150 á Loðfíl. Ég veit ekki um fleiri vefþjóna eins og er.

@oligneisti @matti

Maður ætti kannski að færa sig á íslenskan server?

@svatli @matti

Ég ákvað að vera með einn aðgang á íslensku og einn á ensku. Hvort það sé góð hugmynd veit ég ekki. Ég hef bara lent í því að missa tengslin við fólk á samfélagsmiðlum af því að ég enda með að nota aðallega íslensku.

@oligneisti @matti

Já, kannski það sé ráð.

@oligneisti @svatli @matti

Jæja, ég skellti í íslenskan aðgang á loðfílnum, mér líst vel á það við fyrstu skoðun.