Halló Loðfíll!

Fannst gaman að komast að því að það væri til íslenskur server þannig að mér datt í hug að gera aðgang hérna líka.

Ég heiti Sesselja, ég er #trans kona og bý í #Reykjavík

Vinnan mín er óspennandi en ég á fullt af áhugamálum #tölvuleikir #forritun #tónsmíðar #safnkortaspil #hlutverkaspil #skrif #gagnabeyglun o.fl. sem ég skiptist á að hafa brennandi áhuga á á milli vikna en gleymi svo annars að séu til af því að #athyglisbrestur er hlutur.

#kynning

Er 31 árs gaur úr Breiðholtinu unnið með fatlaða einstaklinga undanfarinn áratug. Tónlistasmekkur mest old-school rokktónlist. Rek heimspekikaffið "Heimspeki Café", áhuga á allskonar nördaskap og líka heilalausu afþreyingarefni þegar sá gállinn er á mér.
Hundaeigandi og áhuga á flestu sem því tengist.
Já...held þetta sé ágætis kynning á mér.

#IslMasto #Kynning #íslenska

@islendingur Var búsettur í bandaríkjunum í 30 ár, flutti aftur til landsins fyrir tveim árum og bý nú í Garðabæ. Ég er einhleypur og bý einn. Starfa í tölvuöryggisgeiranum. #askmeanything #íslenska #íslendingar #islenska #islendingar #icelanders #icelandic #kynning

Jæja, ég er búinn að lurka hérna nógu lengi. #kynning

Hæ, ég heiti Haukur og ég er pólitískur flóttamaður af Twitter, þaðan sem sum ykkar kannast kannski við mig. Ég er tölvunarfræðingur en vinn í Nexus. Það átti að vera tímabundið en er orðið lengsta starfið mitt. Fjölsviðanörd, kattaunnandi, -eigandi og sveifludans(kenn)ari, en mun eflaust aðallega nýta þennan vettvang til að nöldra yfir stjórnmálum og þykjast vera fyndinn. Boosta grimmt en fave'a mjög sparlega (sko, ég kann lingóið).

@johannesbirgir skrýtið, #kynning virkar allavega!

#kynning er kannski ekki bara eitthvað sem fólk gerir sjálft heldur líka ábending um notendur.

Birgir Baldursson @[email protected] þekktastur fyrir að vera trommari í hljómsveitum eins og Bless og SH Draumur, Unun og minna þekkri vanmetinni hljómsveit sem hét Heiða og heiðingjarnir (plús frægri popphljómsveit).

Biggi er líka einn af þeim sem voru áberandi í íslenska bloggheiminum.

#bloggarar

#Kynning

Hæ ég 45 ára Akureyringur, með sveinspróf í rafvirkjun, BSc í viðskiptafræði og starfa sem verkamaður í frystihúsi. Áhugamaður um sagnfræðilegt efni, fánýtan fróðleik og spurningakeppnir, einnig stöku fimmaurabrandara.

Held mig yfirleitt til hlés í samkvæmum

@islendingur Bý í Rvík, upprunalega úr sveit samt. Vinn í leikhúsi, hef áhuga á alls konar nördaskap. Á kærustu, son, stjúpdætur og stjúpkisur. Nennti aldrei neinu á Twitter og nenni örugglega aldrei neinu hér heldur, en hér er ég nú samt. #kynning
#kynning pt 3.
Ég reyni að vera góður og mun nota myllumerki og jafnvel cv en það munu óhjákvæmilega detta inn ómerktir fótboltapóstar. Því ég er ég og ég án fótbolta er ekki ég.
@islendingur Ég heiti Guðmundur. Bara hérna til að vera með. Nennti aldrei að tjá mig á Twitter og nenni mögulega engu hér heldur. Vinn í leikhúsi, hef áhuga á alls konar sem hægt er að nördast yfir. #kynning