Hér var áðan stuð fyrir áhugafólk um þá koppa og kirnur sem um höfin fljóta: inn fjörðinn kom stímandi stífbónuð lystisnekkjan LA DATCHA, hentugleikaskráð í Panama, komin til að undirbúa aprés-ski fyrir rússneska eigandann og vini hans.

Hitti hún fyrir hana FREYJU, flaggskip Gæslunnar, sem hafði komið sér þægilega fyrir ofan á kúkabunubólu okkar heimafólks, og fannst mér á tímabili eins og þær ætluðu í störukeppni. En síðan mjakaði DATCHAN sér hógværlega inn á Poll, enda heilum 6m styttri.

Blessunin hún FREYJA er búin að vera hér í hálfan mánuð og segir kaffiskúraskvaldrið að það sé vegna hugbúnaðaruppfærslu. Við skulum bara vona öllsömul að það sé ekki uppfærsla í Windows 11... 🥴