Vísindavefurinn

@visindavefur
9 Followers
1 Following
80 Posts
Vísindavefurinn fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem nefnast, allt frá stjörnufræði til handrita og frá sameindalíffræði til sálarfræði.

https://www.visindavefur.is/svar.php?id=87988

Örstutta svarið við spurningunni er: Sennilega er hægt að framleiða hrafntinnu úr ríólít-dufti en til þess þyrfti að minnsta kosti háhitaofn.

Sveinn Jökull Stefánsson vildi fá svar við þessu: Er hægt að framleiða eigin hrafntinnu án þess að nota eldgos?

Sigurður Steinþórsson, prófessor emeritus, svarar.

#vísindavefurinn #vísindavefur #hrafntinna

https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88693

Því hefur verið haldið fram að fjöldi þeirra tegunda sem á eftir að lýsa og greina í jarðvegi séu fleiri en allar þær tegundir sem þrífast ofanjarðar.

- Hvaða lífverur finnast í jarðvegi?

Ólafur Arnalds, prófessor emeritus, svarar spurningunni.

#vísindavefurinn #vísindavefur #jarðvegur #lífverur

https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88677

Tvær rætur liggja að evrópskum reikningsbókum. Annars vegar voru fræðirit, theoretica, rituð á latínu, samskiptamáli miðalda. Hins vegar urðu til hagnýtar bækur fyrir kaupmenn, practica, ritaðar á móðurmálinu, fyrst á Ítalíu þar sem þær nefndust libri di abbaco.

- Hvaða fyrirmyndir eru að evrópskum reikningsbókum?

Kristín Bjarnadóttir, prófessor emerita, svarar spurningunni.

#vísindavefurinn #vísindavefur #reikningsbækur

https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88694

Víða um heim, ekki síst á þurrlendissvæðum og þurrum svæðum jarðar, er að finna lífræna jarðvegsskán (e. crust, soil crust, biocrust), sem gerð er af fléttum, blágrænuþörungum, mosum og fleiru. Skán þessi hefur afar mikil áhrif á jarðvegsyfirborðið og vistkerfi.

Ólafur Arnalds, prófessor emeritus, svarar spurningunni Hvað er jarðvegsskán og af hverju er hún svona mikilvæg?

#vísindavefurinn #vísindavefur #visindavefur #jarðvegsskán

https://www.visindavefur.is/svar.php?id=80575

Jónas Hallgrímsson lést í Kaupmannahöfn í maí 1845 og var lík hans grafið í kirkjugarði þar. Rétt um öld síðar voru leifar skáldsins grafnar upp, fluttar til Íslands og síðan grafnar á ný í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum.

Snæbjörn Pálsson, prófessor í stofnlíffræði við HÍ, svarar spurningunni:

- Geta nútímavísindi sagt til um það hvort bein sem grafin eru á Þingvöllum séu í raun og veru af Jónasi Hallgrímssyni?

#vísindavefurinn #vísindavefur #Jónas #bein #erfðaefni

https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88683

Útfjólubláu ljóseindirnar í sólarljósinu búa að nægri orku til að brjóta niður mörg litarefni í smærri sameindir og breyta þannig litaáferð spegilflatarins.

- Af hverju dofna og upplitast litir á hlutum sem eru lengi í sólarljósi?

Ari Ólafsson, dósent emeritus í eðlisfræði við HÍ, svarar því.

#vísindavefurinn #vísindavefur #upplitast

https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88541

Súsanna Rós spurði: Hvaðan kemur orðatiltækið „að berja sér á brjóst“ og hver er merking þess? Ég hef alltaf haldið að þetta þýddi að hreykja sér og berja á brjóst eins og górillur gera, en svo virðast aðrir skilja þetta orðatiltæki sem að barma sér. Hvort er rétt?

Guðrún Kvaran svarar spurningunni.

#vísindavefurinn #vísindavefur #berja #brjóst

https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88567

Allt í steik!

- Hvað kemur steik málinu við þegar „allt er í steik“?

Guðrún Kvaran svarar spurningunni.

#vísindavefurinn #vísindavefur #steik

https://www.visindavefur.is/svar.php?id=85007

Neðansjávarhryggurinn frá Austur-Grænlandi um Ísland til Færeyja og Bretlandseyja er „afurð“ möttulstróksins sem nú er undir Íslandi.

- Hefur einhvern tíma verið hægt að ganga um landbrú frá Íslandi til meginlandanna?

Sigurður Steinþórsson, prófessor emeritus, svarar því.

#vísindavefurinn #vísindavefur #landbrú

https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88690

Hér er verið að vísa til þess að ýmis íslensk fyrirtæki gera upp rekstur sinn og efnahag í annarri mynt en íslenskri krónu, til dæmis dollar eða evru.

- Hvað er átt við þegar sagt er að íslensk fyrirtæki flýi krónuna og hvað felst í því?

Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við HÍ, svarar spurningunni.

#vísindavefurinn #vísindavefur #krónan