#Indland dagur 3.
Mumbai er stór, Tók leigubíl í rúman klukkutíma í gamla Mumbai til að fara í ferju til Elephanta.
Hitti þar heilagar kýr, þjófótta apa og ágenga Indverja.
Andvarinn á meðan á siglingunni stóð var mjög kærkomin, þá sá maður líka almennilega hve þykk mengunarþokan sem liggur hér yfir öllu er, skygnið er aldrei yfir 10km.
Fór svo á kaffihús með skotgöt eftir hryðjiverkaárás í veggnum síðan 2008.
Tilvist þeirra í dag er mjög lýsandi fyrir allt viðhald hér í landi.