Kannski óvinsæl #skoðun.

Mér finnst #fiskari fínt orð. Það er auk þess gamalt orð sem kemur m.a. fram í einni fyrstu Biblíuþýðingunni. Það að þetta orð sé notað í þessu samhengi í lagabálki þýðir ekki að það sé #bannað að nota önnur orð eða að fólki beri að nota það í mæltu máli, ekki frekar en allt mögulegt annað úr lagabálkum Alþingis og notast lítið sem ekkert hjá fólki almennt. Ég gæti samt trúað að sú athygli sem þetta orð hefur fengið gæti orðið til þess að einhver muni nota það.

#Plokkfiskur hefur t.d. verið kallaður #plokkari hjá sumum, sem er skemmtileg stytting, ekki að það tengist þessari umræðu beint, en það er þó allavega hefð fyrir álíka styttingum (en orðið #fiskari er auðvitað líka gamalt orð eins og komið hefur fram). Persónulega held ég að verið sé að gera #úlfalda úr #mýflugu í þessari umræðu um þetta blessaða orð, en auðvitað má hafa #gaman að svona umræðu, þó ekki sé annað.
@svatli ætlarðu að horfa á íslensku handboltarana keppa í næstu viku?

@sv1floki væru það þá ekki handararnir? Sem væri þá eitthvað.í líkingu við, hán er að fara að spila handara 🙂

Annars er ég auðvitað á því að þetta orð, fiskari, geti hugsanlega bætt við skemmtilegu orði í flóruna eða gleymist bara fljótlega (sem er kannski ólíklegt úr því sem komið er). En það þýðir samt auðvitað ekki að allt passi bara með -ara endingu...það gæti orðið hálf kjánalegt, þó að fössarinn hafi vissulega slegið í gegn.

@svatli @sv1floki Það er eins og allir hafi gleymt að pípulagningarmenn og sjómenn voru styttir í pípara og sjóara. Ekki telst það barnalegt.