Ég keypti loftsteikingarpott á tilboði fyrir viku. Það sem sannfærði mig um að kaupa var að Kevin Day í That Happens hlaðvarpinu var að lýsa því hve gott væri að steikja einfalda frosna rétti í þeim.
Núna í hádeginu prufaði ég gervikjúklings tikka masala spjót sem ég keypti í Costco og falafel með. Ég hafði prufaði spjótin áður og fannst þau ekki vond en mjög óspennandi.
Í loftsteikingarpottinum varð þetta frábært. Ég hlakka til að prufa fleira, kannski sérstaklega franskar.
#matur #loftsteikt